Listaverk í smíðum í gamla bænum

Á vef Húna.is er sagt frá því að listakonan Ashley Lamb frá Chicago sé búin að koma sér fyrir við vegginn við Blöndu, þar sem ,,Gústasjoppa" stóð áður. En þar málar hún myndir af ,,eftirlæti" íbúa á Blönduósi, gæsinni og kríunni. Þetta er í annað sinn sem Ashley kemur til Íslands, en hún dvaldi í listamiðstöðinni Nes á Skagaströnd þá en nú hefur hún verið nemi við Textílsetur Íslands á Blönduósi. Ashley vinnur við háskóla í Chicago og notar sumarfríið sitt til að nema á Íslandi.

 

Ashley sagðist hafa skokkað um Blönduós nokkrum sinnum í viku í sumar og fengið hugmyndina að verkinu í gamla bænum því þar hefði hún alltaf mætt gæsum og kríum. Gæsir og Kríur finnast ekki þaðan sem hún kemur og heillaðist hún að þessum fuglum og langaði að gera þeim hátt undir höfði í þeirra umhverfi og þegar hún rakst á þennan vegg í gamla bænum fékk hún áhuga á því að mála á hann. Nokkur fyrirtæki í bænum hafa styrkt verkefnið og er vonandi að verkið fái að njóta sín og gleðja aðra um ókomna tíð. Hægt er að sjá nokkur verka Ashley á heimasíðu hennar www.ashleyklamb.com.

Mynd: húni.is

Mynd: Húni.is

Fleiri fréttir