Lítilsháttar væta fram yfir hádegi

Á Ströndum og Norðurlandi vestra er fremur hæg austlæg átt og lítilsháttar væta fram yfir hádegi, en síðan úrkomulítið. Hiti 3 til 10 stig að deginum, en nálægt frostmarki í nótt.

Veðurhorfur á landinu næstu daga:

Á laugardag:

Austlæg átt, 8-13 m/s og rigning með köflum á S-verðu landinu, en úrkomulítið fyrir norðan. Hiti 3 til 11 stig, mildast fyrir norðan.

Á sunnudag:

Austan 10-15 m/s og víða rigning og slydda N-til um kvöldið, en lengst af úrkomulítið á V-landi. Heldur kólnandi veður.

Á mánudag:

Norðaustanstrekkingur og slydda NV-til, en annars hægari suðlæg átt og rigning með köflum. Hiti 1 til 6 stig að deginum.

Á þriðjudag, miðvikudag og fimmtudag:

Breytilegar áttir og skýjað með köflum, en stöku skúrir við sjávarsíðuna. Fremur milt að deginum.

Fleiri fréttir