Lítilsháttar væta í dag
Norðaustan 10-18 með lítilsháttar vætu er á Ströndum og Norðurlandi vestra, hvassast á annesjum. Norðaustan 5-13 og þurrt á morgun. Hiti 5 til 11 stig.
Veðurhorfur á landinu næstu daga:
Á miðvikudag og fimmtudag:
Norðaustan 8-13 m/s og lítilsháttar væta um landið N- og A-vert, annars bjart að mestu. Hiti 3 til 10 stig, mildast með S-ströndinni.
Á föstudag:
Norðan 8-13 m/s og dálítil slydda eða rigning fyrir norðan, en þurrt syðra. Hiti 1 til 8 stig, svalast fyrir norðan.
Á laugardag:
Norðlæg átt og lítilsháttar snjókoma N- og A-lands, slydda syðst, en annars úrkomulítið. Kólnar í veðri og frystir víða nyrðra.
Á sunnudag:
Hægir vindar og bjartviðri inn til landsins, en strekkingsvindur og skúrir eða él úti við S- og A-ströndina. Fremur kalt í veðri.