Lítur út fyrir hvít jól
Veðurstofan gerir ráð fyrir snjókomu og éljum fram að jólum og því má búast við hvítum jólum. Seinni seinnipartinn í dag verður hægt vaxandi suðaustanátt, 8-15 m/s og dálítil snjókoma eða jafnvel slydda á Ströndum og Norðurlandi vestra hiti kringum frostmark seint í dag. Hægari seint í kvöld og úrkomulítið.
Á morgun gerir Veðurstofan ráð fyrir suðvestan 8-13 og él og vægu frosti.
Veðurhorfur á landinu næstu daga
Á þriðjudag:
Suðvestan 8-15 m/s og éljagangur, en léttskýjað á austurhelmingi landsins. Frost 0 til 10 stig, kaldast í innsveitum NA-til.
Á miðvikudag:
Austan og norðaustan 8-15 m/s, en 15-20 með S-ströndinni framan af degi. Snjókoma víða um land og slydda syðst, en úrkomuminna á Vestfjörðum. Snýst í vestan 10-18 syðst undir kvöld. Frost 0 til 7 stig, en frostlaust við S- og A-ströndina.
Á fimmtudag:
Breytileg og síðar austlæg átt og snjókoma með köflum, en úrkomulítið fyrir norðan. Frost 0 til 8 stig, kaldast í innsveitum N-lands.
Á föstudag (Þorláksmessa):
Útlit fyrir norðvestlæga átt með éljum víða um land. Frost um mest allt land.
Á laugardag (aðfangadagur jóla):
Líkur á suðaustan- og síðar sunnanátt með snjókomu eða slyddu, en úrkomuminna fyrir norðan og austan.