Ljóðasamkeppni meðal nemenda FNV

Ljóðasamkeppni stendur nú yfir á meðal nemenda Fjölbrautaskóla Norðurlands vestra í tilefni af Geirlaugsminni sem haldið verður í minningu Geirlaugs Magnússonar skálds og kennara við FNV  1982-2004. Ljóðaformið er frjálst og skilafrestur er til mánudagsins 8. apríl. 

Á heimasíðu FNV kemur fram að hver nemandi getur sent inn eitt ljóð en við mat á gæðum ljóðanna hefur dómnefndin sérstaklega í huga frumleika í ljóðagerð og vald á íslenskri tungu.

Verðlaun verða fyrir þrjú bestu ljóðin og verða þau afhent á Geirlaugsminni sem haldið verður fimmtudaginn 11. apríl kl. 20:00 á sal FNV.

Verðlaunin eru eftirfarandi:

1. verðlaun:      Fjögurra rétta ferðalag fyrir tvo á Hardwok Cafe, kr. 5.000 og bækur

2. verðlaun:      Tveir miðar í Króksbíó og bækur

3. verðlaun:      Óvæntur glaðningur og bækur

Dómnefndina skipa Benedikt S. Lafleur, bókaútgefandi og Guðbjörg Bjarnadóttir deildarstjóri í íslensku við FNV. Ljóðin skal senda á netfangið gudbjorg@fnv.is merkt Ljóðasamkeppni.

Fleiri fréttir