Ljós og náttúra Norðurlands vestra - Myndband
feykir.is
Skagafjörður, Austur-Húnavatnssýsla, Vestur-Húnavatnssýsla
26.11.2013
kl. 16.04
Jón R. Hilmarsson fv. skólastjóri á Hofsósi er um þessar mundir að senda frá sér sína aðra ljósmyndabók sem ber heitið Ljós og náttúra þar sem Norðurlandi vestra er gerð góð skil. Bókina prýðir alls 121 mynd sem teknar voru á öllum tímum dagsins, öllum árstíðum, af landi og úr lofti. Jón verður staddur á Hvammstanga 1.desember og áritar bókina fyrir áhugasama.
Hér fyrir neðan má sjá myndband sem Alexandra Chernyshova, eiginkona Jóns, útbjó og sýnir það hvers sé að vænta með bókinni.
https://www.youtube.com/watch?v=MpiDfmothlk