Ljósleiðaravæðing Húnavatnshrepps
Í nýju fréttabréfi Húnavatnshrepps kemur fram að í hreppnum sé nú hafin ljósleiðaravæðing af fullum krafti. Fjórir verktakar skiluðu inn tilboðum í verkefnið í lokuðu útboði sem sveitarfélagið hélt fyrir nokkru.
Samþykkt var að ganga til samninga við Bjarna Pálsson um lagningu heimtauga á leiðum 2 og 3 og gengið var til samninga við Lás ehf. um lagningu ljósleiðara á leið 1, bæði stofn- og heimtaugar. Þá mun Lás ehf. einnig leggja stofntaug á leið 2 en sú vinna hefst 8. ágúst næstkomandi.
Nánar er sagt er frá þessu í nýju fréttabréfi Húnavatnshrepps en þar segir meðal annars að lagning stofntaugar muni að mestu verða lokið í næstu viku, en hægt er að lesa fréttabréfið hér.
Ekki eru allir á eitt sáttir við lagningu ljósleiðaranna en nýlega birti Feykir pistil eftir Valdimar Guðmannsson, eigandi Bakkakots í Blönduósbæ, þar sem hann kvartaði yfir peningaeyðslunni við að leggja nýjan streng þegar annar var til staðar. Nánar má lesa pistil hans hér.