Ljósleiðari á alla bæi

Frá lagningu ljósleiðara í dreifbýli Blönduóssbæjar: Mynd: blonduos.is
Frá lagningu ljósleiðara í dreifbýli Blönduóssbæjar: Mynd: blonduos.is

Lokið hefur verið við að plægja ljósleiðara í dreifbýli Blönduósbæjar og eru heimtaugar komnar inn fyrir vegg á alla bæi.  Alls voru það 28 bæir sem fengu tengingar og er verið að ljúka við vinnu í brunnum og uppsetningu tengiboxa. Eftir er að draga stofnlagnir í símstöð innanbæjar á Blönduósi.

Verktaki var Vinnuvélar Símonar ehf. á Sauðárkróki en verkið var að hluta til samstarfsverkefni Blönduósbæjar, Húnavatnshrepps og Mílu. Upplýsingar um legu ljósleiðarans er hægt að nálgast á heimasíðu Blönduósbæjar, blonduos.is.

Fleiri fréttir