Ljósmyndasýningin - Náttúran í Austur Húnavatnssýslu
Mánudaginn 10. október nk. opnar ljósmyndasýningin, Náttúran í Austur-Húnavatnssýslu í íþróttahúsinu á Blönduósi. Þar ætlar áhugaljósmyndarinn Róbert Daníel Jónsson að sýna myndir sem teknar eru í Austur-Húnvatnssýslu. Aðal markmið sýningarinnar er að auka áhuga fólks á fallegri náttúru Austur- Húnavatnssýslu og er hún styrkt af Uppbyggingarsjóði Norðurlands vestra.
Róbert hefur búið ásamt fjölskyldu sinni á Blönduósi í rúm 11 ár og á þeim tíma hefur áhugi hans á svæðinu aukist mikið. Hann er mikill útivistarmaður og er myndavélin nánast undantekningalaust með í för í göngu-, hjóla- og veiðiferðum. Róbert er ekki menntaður ljósmyndari en hefur, eins og áður hefur komið fram, á undanförnum árum haft gríðarlegan áhuga á að taka fallegar myndir og hefur haft mikinn metnað fyrir því að uppfæra búnað og tæki til þess að ná sem bestum gæðum fram, er með atvinnumanna ljósmyndabúnað og festi nýverið kaup á flygildi sem hefur að hans sögn vonandi aukið fjölbreytni og gæði ljósmyndanna.
Róbert á orðið stórt safn fjölbreyttra ljósmynda frá Austur- Húnavatnssýslu sem hann langar til að nota til að kynna svæðið enn betur. Ljósmyndum hans hefur verið vel tekið og hafa þær farið víða í kynningarefni fyrir sýsluna á undanförnum árum og hefur fengið mikið lof frá heimamönnum sem og ferðafólki fyrir góða kynningu á svæðinu með myndunum sínum.
Hægt verður að skoða sýninguna á opnunartíma Íþróttamiðstöðvarinnar á Blönduósi .