Ljótu hálfvitarnir á Blönduósi 14. júní

Fyrstu tónleikar Ljótu hálfvitanna á annasömu hálfvitasumri verða í félagsheimilinu á Blönduósi föstudaginn 14. júní nk. Þar hafa Hálfvitar aðeins einu sinni leikið áður og þótti það hin besta skemmtun. Þær eru hinsvegar ófáar pylsurnar sem nímenningarnir hafa hesthúsað á greiðasölu N1s í bænum, á leiðinni eitthvað annað. Það var því löngu tímabært að stoppa, stilla upp og spila smá.

Fjórða plata hjómsveitarinnar er í þann mund að koma út, svo prógrammið verður hálfvitalegur kokteill úr efni af „gömlu“ plötunum, hræður og hristur saman við dass af lögum af þeirri nýju sem að öllum líkindum verður með í för og seld þeim sem kæra sig um hana.

Tónleikarnir hefjast kl. 21 en hús opnað klukkustund fyrr. Forsala verður á Pottinum Restaurant í vikunni á undan tónleikunum. Athugið að enginn posi er í forsölunni (en nóg af þeim á sjálfum tónleikunum).

Nánari upplýsingar gefa Ármann Guðmundsson í síma 864-4880 og Þorgeir Tryggvason í síma 694-7749.

Fleiri fréttir