Lög á útgerðarmenn?

Útgerðarmenn hafa kastað grímunni, segir Ólína Þorvarðardóttir alþingismaður á bloggsíðu sinni, og ekki aðeins gagnvart stjórnvöldum, heldur einnig gagnvart sjómönnum og almenningi. Það hlaut að koma að því, segir hún og er ómyrk í máli gagnvart útgerðarmönnum og minnist þess þegar þeir fóru fram á stuðning sjómanna þegar flotinn sigldi í land fyrr á þessu ári.

„Þeir hóta verkbanni. Hóta enn eina ferðina að sigla flotanum í land. Telja nú rétt að sjómenn greiði veiðileyfagjaldið fyrir þá í formi 15% kauplækkunar. Útgerðarmenn hafa krafið þessa sömu sjómenn um stuðning – og jafnvel fengið þann stuðning með einum eða öðrum hætti, líkt og síðast þegar flotinn sigldi í land. Nú launa þeir stuðninginn, svo eftir er tekið,  með verkbannshótun og kröfu um að sjómenn beri veiðileyfagjaldið en ekki útgerðirnar, segir Ólína og bætir við: „Veiðileyfagjaldið er reiknað sem hlutfall af af umframgróða útgerðarinnar. Umframgróðinn er það sem eftir stendur þegar búið er að draga frá allan rekstrarkostnað, þar með talin laun og arðgreiðslur. Hækkun launa til sjómanna þýðir í raun minni umframgróða, og þar með lægri gjaldstofn vegna veiðileyfagjalds.“

Ólína segir það með ólíkindum, við þessar aðstæður, að útgerðarmenn skuli telja sér sæmandi að hóta verkbanni á sjómenn og telur stjórnvöld ekki geta látið það viðgangast að veigamikil atvinnugrein lamist vegna hótana- og hernaðarpólitíkur útgerðarmanna.

Pistil Ólínu má nálgast HÉR

Fleiri fréttir