Lögin hans Óda í kvöld
Í kvöld verða tónleikar í Menningarhúsinu Miðgarði í Varmahlíð þar sem flutt verða lögin hans Óðins Valdimarssonar. Tónleikarnir hefjast kl. 21 og er miðasala við innganginn. Fjöldi flottra listamanna tekur þátt í að setja tónleikana upp.
Flytjendur eru Helenu Eyjólfsdóttur, Óskar Pétursson, Brynleif Hallsson, Einar Braga Bragason, Þorleif Jóhannsson, Stefán Gunnarsson, Hermann Arason, Friðjón Jóhannsson, Valgarður Óli Ómarsson, Snorri Guðvarðarson og Rafn Sveinsson sem rekur feril söngvarans.
Tekin verða lög sem Ódi gerði heimsþekkt á Íslandi og má þar nefna lög eins og Í kjallaranum, Ég er kominn heim, Einsi kaldi úr Eyjunum, Magga og Útlaginn.
Miðasala er við innganginn í Miðgarði.