Lögreglan á Blönduósi stöðvaði par við dópflutninga

Í gærkvöldi stöðvaði lögreglan á Blönduósi bifreið á suðurleið í hefðbundnu umferðareftirliti.  Grunur kviknaði strax á þá leið að maður og kona er í bifreiðinni voru hefðu óhreint mjöl í pokahorninu en þarna var um að ræða þekkta afbrotamenn af höfuðborgarsvæðinu.  

Ökumaður bifreiðarinnar, kona á fertugsaldri er grunuð um að aka bifreiðinni undir áhrifum ávana, - og fíkniefna.  Karlmaður sem með henni var og einnig er á fertugsaldri reyndi að losa sig við fíkniefni í lögreglubifreiðinni.  Um er að ræða lítilræði af kannabis.  Leitað var í bifreið parsins,  en ekkert fannst í fyrstu.  Þegar Freyja fíkniefnahundur lögreglunnar á Blönduósi var látin leita í bifreiðinni gaf hún til kynna að fíkniefni væru falin í innréttingu bifreiðarinnar.  Eftir töluverða leit og fyrirhöfn fannst ætlað amfetamín í poka sem ætlað er nokkur grömm.   -Það kætir okkur ávallt hér hjá lögreglunni á Blönduósi þegar að Freyja finnur fíkniefni sem ekki hefðu fundist ella og sýnir fram á nauðsyn þess að lögreglan sé alltaf með góða fíkniefnahunda í sinni þjónustu, segir í tilkynningu frá lögreglunni á Blönduósi.

Fleiri fréttir