Lögreglan biðlar til fólks að halda sig heima

Lögreglan á Norðurlandi vestra hefur sent frá sér svohljóðandi tilkynningu á Facebooksíðu sinni:

Almannavarnarnefndir Skagafjarðar og Húnavatnssýslna hefur lokið fundi vegna yfirvofandi óveðurs og lítur málið alvarlegum augum, enda er í fyrsta skipti hérlendis gefin út rauð viðvörun vegna veðurs.

Lögreglan á Norðurlandi vestra biðlar til fólks að halda kyrru fyrir enda verður ekkert ferðaveður á morgun, búast má við víðtækum vegalokunum í umdæminu strax í fyrramálið.

Þá er fólki einnig bent að huga sérstaklega vel að öllum lausamunum utandyra, svo sem ruslatunnum og öðru sem gæti valdið tjóni og eða skaða.

Sjávarmál verður í hærra lagi og því eru smábátaeigendur beðnir um að huga að bátum sínum og festa þá vel.

Allt skólahald í umdæminu, leik-, grunn- og framhaldsskólar, falla niður á morgun og á miðvikudag og öll íþróttamannvirki verða lokuð.

Rafmagn gæti einnig raskast vegna veðurs.

Gangi veðurspá að fullu eftir, þarf fólk að verða meðvitað um að það getur reynst miklum erfiðleikum bundið fyrir viðbragðsaðila að komast á vettvang og getur tekið langan tíma. Það þarf samt að sjálfsögðu að tilkynna öll tjón strax. Minnum á neyðarnúmerið: 1-1-2.

Hjálpumst að og látum fréttirnar berast. Fylgist vel með fréttum og eins og fyrr segir haldið kyrru fyrir og verið heima!

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir