Lögreglan vill setja bann við lausagöngu búfjár í Blönduósbæ

Frá Blönduósi. Ljósm./BÞ
Frá Blönduósi. Ljósm./BÞ

Lögreglustjórinn á Norðurlandi vestra hvetur Blönduósbæ til að setja bann við lausagöngu búfjár í sveitarfélaginu og að leita samninga við Vegagerðina um friðun þjóðvegar nr. 1 með girðingum og viðhaldi þeirra til að auka umferðaröryggi. Þetta kemur fram í fundargerð byggðaráðs Blönduósbæjar frá 13. janúar sl. 

Í fundargerðinni kemur fram að byggðaráð taki jákvætt í erindið og feli sveitarstjóra að hafa samband við Vegagerðina vegna málsins og senda bréf lögreglustjórans til kynningar í Landbúnaðarnefnd Blönduósbæjar.

Fleiri fréttir