Lögreglumönnum fjölgað um þrjá á NLV
feykir.is
Skagafjörður, Austur-Húnavatnssýsla, Vestur-Húnavatnssýsla
17.01.2014
kl. 14.54
Á vef innanríkisráðuneytisins kemur fram að til stendur að fjölga lögreglumönnum um 52 á landsvísu. Af þeim fjölgar um þrjá. á NLV, einn á Blönduósi og tvo á Sauðárkróki. Einnig koma aukin framlög vegna aksturs á NLV.
Í fréttinni kom einnig fram að nokkur embætti fá aukið framlag til rannsókna á kynferðisafbrotamálum, en það á ekki við um NLV, enda ekki rannsóknardeildir þar.
Fjölgun lögreglumanna er eitt af því sem nefnd um forgangsröðun á 500 króna viðbótarframlagi til eflingar löggæslu lagði til og hefur innanríkisráðherra samþykkt tillögurnar. Fljótlega verða störfin auglýst og reiknað er með að ráðið verði í þau frá og með 1.mars.