Lokahátíð framsagnarkeppninnar
Síðast liðinn þriðjudag var lokhátíð Framsagnarkeppni grunnskólanna í Húnavatnsþingi var haldin í Höfðaskóla á Skagaströnd. Keppnin er tileinkuð Grími heitnum Gíslasyni, fréttaritara og fyrrum bónda frá Saurbæ í Vatnsdal. Markmið keppninnar er að glæða tilfinningu og metnað húnvetnskra grunnskólanema fyrir íslensku máli og framsögn. Sá skóli sem sigrar í keppninni fær til varðveislu farandskjöld sem gefinn var af sjóði sem stofnaður var til heiðurs Grími Gíslasyni.
Þrír keppendur frá hverjum skóla tóku þátt í lokahátíðinni, þ.e. frá Blönduskóla, Húnavallskóla, Höfðaskóla, og Grunnskóla Húnaþings vestra. Dómarar voru að þessu sinni Baldur Sigurðarson, Magnús B. Jónsson og Sigrún Grímsdóttir. Keppendur lásu brot úr skáldverki eftir Þorgrím Þráinsson, ljóð eftir Erlu (Guðfinnu Þorsteinsdóttur) og ljóð að eigin vali.
Í fyrsta sæti var Laufey Lind Ingibergsdóttir frá Höfðaskóla, í öðru sæti Lilja Maria Suska frá Húnavallaskóla og í því þriðja Sverrir Helgi Sigurðsson Húnavallaskóla. Keppendur stóðu sig allir mjög vel og áhorfendur voru einstaklega prúðir.
Fleiri myndir frá hátíðinni má sjá á myndasíðu Húnavallaskóla.