Lokaskráningadagur á Ís-landsmót á Svínavatni 5. mars
Enn er hægt að skrá sig til þátttöku á Ís- landsmótið sem fram fer á Svínavatni þann 5. mars. Einhverjir hafa haft áhyggur af ísnum en mótshaldarar segja að hann sé afskaplega góður, sléttur og traustur.
"Skráningar skulu berast á netfangið gudinga@ismennt.is í síðasta lagi í dag, þriðjudaginn 1 mars. Ekki verður tekið við skráningum eftir þann tíma. Eftirtalið þarf að koma fram: Keppnisgrein, kennitala knapa, og IS númer hests. Keppnisgreinar eru A-flokkur, B-flokkur og tölt. Skráningargjald eru 3.000. kr. á skráningu. Greiðist inn á reikning 0307 - 13 - 110496, kt. 480269-7139 í síðasta lagi í dag, þriðjudaginn 1 mars annars verður viðkomandi ekki settur á ráslista. Sendið kvittun á neisti.net@simnet.is þar sem fram þarf að koma fyrir hvaða knapa er verið að borga."