Lokun urðunarstaðar krefst 30 ára ábyrgðar
Á síðasta fundi sveitarstórnar Skagastrandar var fjallað um lokun urðunarstaðarins að Neðri Harrastöðum en í minnisblaði um málið kemur fram m.a. að vegna lokunar og frágangs urðunarstaðarins gerir UST kröfu um að ábyrgð verði lögð fram samkvæmt lögum en fellst á að hún verði einungis á formi yfirlýsingar en ekki fjárhagsleg nema fram komi kröfur þar að lútandi.
Svohljóðandi bókun var samþykkt á fundinum:
,,Sveitarstjórn Sveitarfélagsins Skagastrandar ábyrgist að staðið verði við þær skyldur sem settar eru fram varðandi frágang og vöktun urðunarstaðar sveitarfélagsins að Neðri-Harrastöðum, sbr. 43. gr. laga nr. 55/2003 um meðhöndlun úrgangs. Af hálfu Sveitarfélagsins Skagastrandar er litið svo á að yfirlýsing þessi jafngildi starfsleyfistryggingu, sbr. 41. gr. laga nr. 55/2003 og 17. gr. reglugerðar nr. 738/2003 um urðun úrgangs. Ábyrgð þessi gildir í 30 ár eftir lokun urðunarstaðarins“