Lokunarslár væntanlegar á fjallvegi á Norðurlandi vestra
Á 112-deginum þann 11. febrúar var formlega tekin í notkun lokunarslá yfir Hellisheiði sem er sú fyrst sinna tegundar hér á landi. Fleiri slám verður bætt við í kjölfarið og eiga þær að notast þegar vegir eru lokaðir vegna færðar.
Hingað til hefur verið látið duga að loka vegum með einfaldri tilkynningu á færðarkorti Vegagerðarinnar eða með bifreiðum. Umræddar slár eiga hins vegar að fara yfir akreinina og loka henni þannig að ekki verði hægt ða komast leiðar sinnar. Bílar sem eru ennþá inn á umræddum vegum komast hins vegar niður, þar sem önnur akreinin er alltaf opin.
Á vef Vegagerðarinnar er haft eftir Hreini Haraldssyni vegamálastjóra að með auknum fjölda ferðamanna, erlendra og innlendra, væri nauðsynlegt að taka upp breytt vinnubrögð, öryggisins vegna. Reynslan hefði líka sýnt að björgunarsveitir þyrftu í auknum mæli að leggja á heiðarnar til að bjarga fólki í vondu veðri og væri ætlunin með slánum og lokuninni á vegum að fækka þeim tilvikum og auka þannig öryggi vegfarenda. Hreinn sagðist vonast til þess að vegfarendur tækju þessu vel.
Auk þessa er búið að uppfæra tölvubúnað í ljósaskiltum Vegagerðarinnar þannig að nú er mögulegt að birta texta hvortveggja á íslensku og ensku og getur skipst á textinn “Lokað” og “Closed” komi til þess að loka þurfi vegi. Einnig hafa verið sett blikkljós á skiltin sem vekja athygli ef til lokunar hefur komið.
Þegar hefur lokunarslá verið sett upp á Dettifossvegi, en í fyrsta áfanga uppsetningar lokunarsláa verða settar upp -- auk Hellisheiðarinnar -- slár í Þrengslum, á Mosfellsheiði, Holtavörðuheiði, Bröttubrekku, Fróðárheiði, Þröskuldum, Steingrímsfjarðarheiði, Hrafnseyrarheiði, Dynjandisheiði, Þverárfjallsvegi, Vatnsskarði, Siglufjarðarvegi, Lágheiði, Öxnadalsheiði, Víkurskarði, Mývatnsöræfum, Fjarðarheiði, Breiðdalsheiði, Fagradal, Öxi og Skeiðarársandi. Fleiri munu síðan bætast við í kjölfarið.
Lokun vegar með slá fer eftir fyrirfram ákveðnu verklagi sem tekur mið af aðstæðum á hverjum stað fyrir sig. Lokun miðast til dæmis við ófærð þar sem snjómoksturstæki hefur ekki undan veðrinu, skyggni er óviðunandi eða veðurhæð þannig að um hættuástand er að ræða, eða vegna slyss. Vegagerðin og björgunarsveitir vinna saman að lokun.
Það er von Vegagerðarinnar og björgunaraðila að vegfarendur taki þessari nýbreytni vel og geri sér grein fyrir að þetta er gert til að auka og tryggja öryggi vegfarenda. Þetta flýtir einnig fyrir því að vegir opni á ný því nú á Vegagerðin stundum í erfiðleikum með að opna vegi vegna bíla sem sitja fastir, mannlausir á heiðum.