Lukku-Lækis leiknum lýkur á morgun

Nú fer hver að vera síðastur að verða Lukku-Lækir Feykis.is en dregið verður til vinninga á morgun, laugardag og niðurstöðurnar birtar á mánudag. Leikurinn er í tilefni þess að nú er Feykir kominn með nýja Facebook síðu, fulla af fjörugum fréttum af Norðurlandi vestra.

Allir Feisbókarar sem læka á Feyki.is hér á forsíðunni eða inn á Facebook eiga kost á ferskum fréttum á vegginn hjá sér, auk þess að þrír lukkunnar pamfílar sem verða dregnir út á morgun hafa unnið til einhverra eftirtalinna vinninga:

  • 1.             Strigaprent að verðmæti 7500 + frí áskrift að Feyki í fjóra mánuði.
  • 2.             Frí áskrift að Feyki í fjóra mánuði.
  • 3.             Frí áskrift að Feyki í tvo mánuði.

Þeir sem þegar hafa lækað eru komnir í pottinn. Já, lauflétt Like gæti fært þér lukku!

Fleiri fréttir