Lumar þú á góðri hugmynd að námskeiði ?
Hefur þú hugmynd að góðu námskeið? Þekkir þú til góðra leiðbeinenda? Hefur þú áhuga á að kenna á námskeiðum Farskólans? Allt eru þetta spurningar sem starfsfólk Farskóla Norðurlands vestra veltur nú fyrir sér en Námsvísir haustannar er nú í undirbúningi.
Halldór Gunnlaugsson hefur yfirumsjón með Námsvísinum að þessu sinni. Hægt er að hafa samband við Halldór eftir verslunarmannahelgina til að koma á framfæri hugmyndum og ábendingum hvort sem er að áhugaverðum námskeiðum eða fólki sem getur kennt eða leiðbeint á námskeiðum Farskólans.
Nokkrar vottaðar námsleiðir hafa þegar verið ákveðnar en þær eru: Nám og þjálfun í almennum bóklegum greinum og Grunnmenntaskólinn, báðar í Skagafirði, Fagnámskeið 2 og 3 í Húnavatnssýslum.
Farskólinn minnir á lesblindugreiningar fullorðinna og náms- og starfsráðgjöf, bæði til einstaklinga og á vinnustöðum, fólki að kostnaðarlausu.