Lumar þú á góðri hugmynd eða verkefni sem þú vilt vinna að?

Námskeið um uppbyggingu verkefna og fyrirtækja í skapandi greinum á Norðurlandi vestra. Þátttakendur sækja námskeiðið á grundvelli verkefnis sem þeir vilja vinna að og er gert ráð fyrir virkri þátttöku þeirra á námskeiðinu.

Leiðbeinandi: Ása Richardsdóttir, B.A. í alþjóðasamskiptum og með diplóma í menningarstjórnun.

Inntak: Fjallað verður um hugmyndavinnu og skipulagningu verkefna, fjármögnun, markaðssetningu, alþjóðlega tengslamyndun og samstarf. Námsefni er fléttað saman við verkefni þátttakenda og þau þróuð í samstarfi námskeiðshópsins og leiðbeinanda.

Staður og tími: Sauðárkrókur, fimmtudagur 31. mars kl: 14 - 18, föstudagur 1. apríl, kl: 10 - 16, laugardagur 2. apríl, kl. 10 – 14.. Námskeiðið er 20 kennslustundir.

Verð: 15:000 kr

Upplýsingar í síma 455-6010 og á heimasíðu Farskólans: www.farskolinn.is. Skráningar skal senda á netfangið Rannveig@farskolinn.is

Umsóknarfrestur er til 3. mars

Fleiri fréttir