Lúsífer í heimsókn á Barnabóli

Herra Lúsifer kom í heimsókn í leikskólann Barnaból í gærmorgun og fengu börnin að kynnast þeim furðufisk. Það var Þröstur Árnason foreldri eins barnsins á leikskólanum sem kom með þennan sérstaklega stóra og myndarlega fisk og þó sumum fannst lyktin af honum ekki góð þá vakti Lúsífer verðskuldaða athygli og aðdáun, segir á heimasíðu leikskólans.

Smáar en beittar tennur og ljósberinn á höfðinu niðurlútur. Mynd: Leikskólinn Barnaból

Honum er lýst sem svörtum og með skrítinn „hala, topp, stert“ upp úr höfðinu sem kemur ljós á þegar hann er lifandi og syndir um í sjónum.

„Við þökkum Þresti innilega fyrir hugulsemina í gegnum árin en hann hefur komið með margar kynjaverur úr sjónum til að gefa okkur færi á að kynnast ólíkum lífverum úr náttúrunni,“ segir loks á heimasíðunni.

 

Fleiri fréttir