Lýðræðisvaktin býður fram í öllum kjördæmum

Lýðræðisvaktin er nú að leggja lokahönd á alla lista fyrir alþingiskosningar 2013 og mun á næstu dögum opinbera þá. Nú þegar liggur fyrir uppstilling í efstu sæti í Reykjavíkurkjördæmi Norður, en þar skipar formaður Lýðræðisvaktarinnar, Þorvaldur Gylfason, efsta sæti.

Listi efstu frambjóðenda Lýðræðisvaktarinnar í Reykjavíkurkjördæmi norður er eftirfarandi:

1. Þorvaldur Gylfason - Prófessor og fv. stjórnlagaráðsfulltrúi
2. Egill Ólafsson - Tónlistarmaður
3. Sigríður Ólafsdóttir    - Lífefnafræðingur
4. Viktor Orri Valgarðsson - Stjórnmálafræðingur
5. Jenný Stefanía Jensdóttir - Viðskiptafræðingur
6. Arnfríður Guðmundsdóttir - Prófessor og fv. stjórnlagaráðsfulltrúi

Lýðræðisvaktin mun bjóða fram í öllum kjördæmum í kosningunum.

Fleiri fréttir