Maður ársins á Norðurland vestra
Eins og undanfarin ár geta íbúar á Norðurlandi vestra kosið mann ársins sem tilnefndir voru af lesendum Feykis og Feykis.is. Í þetta skiptið fengu sex aðilar tilnefningu til titilsins og sumir reyndar fleiri en eina og fleiri en tvær. Þeir sex sem hér eru nefndir verða í kjöri sem Maður ársins á Norðurlandi vestra 2013. Kosningin hófst klukkan 13:00 föstudaginn 20. desember og henni lýkur á hádegi 2. janúar á nýju ári.Hægt verður að greiða atkvæði á Feyki.is en einnig er hægt að senda atkvæði bréfleiðis á Feyki Borgarflöt 1 550 Sauðárkróki.
Tilnefnd voru:
Selma Björk Stefánsdóttir
Selma Björk er 9 ára stelpa sem býr ásamt foreldrum sínum og systkinum á Sauðárkróki. Selma er yndisleg og kát stelpa, en hún hefur barist við flogaveiki og lá m.a. inni á Barnaspítala hringsins í nokkrar vikur í haust. Selma á þennan titill skilið þar sem hún er ótrúlega sterk og dugleg og brosir í gegnum veikindi sín. Selma Björk er hetja!
Unnur Sævarsdóttir á Hamri
Unnur á Hamri kom í veg fyrir að fjósið á Egg í Hegranesi brynni ásamt öllum gripum sl. sumar. Árvekni og hröð viðbrögð hennar og hennar heimafólks varð til þess að ekki fór verr í brunanum og kom í veg fyrir að að ung hjón sem voru nýbyrjuð að búa misstu allt sitt lifibrauð sem þau voru búin að leggja mikinn metnað og ómælda vinnu í að koma á fót.
Geirmundur Valtýsson, hljómlistarmaður
Geirmundur á að baki 55 ára hljómlistarferil en árið 2013 var comeback hjá Geirmundi þar sem lögin hans voru bæði notuð í leiksýningu á Sauðárkróki og söngdagskrá með lögum hans hjá Karlakór Bólstaðarhlíðarhrepps. Bæði umrædd verkefni gerðu lukku og vöktu athygli á Geirmundi sem frábærum lagahöfundi.
Elín Ósk Guðmundsdóttir á Blönduósi
Elín Ósk er skólaliði við Blönduskóla en hún kom samstarfsmanni sínum Ólafi Sigfúsi Benediktssyni til lífsbjargar þegar hann var að hlaupa norræna skólahlaupið með nemendum sínum og fór í hjartastopp. Með snöru viðbragði og kunnáttu sinni náði hún að hnoða hann þar til sjúkralið kom á vettvang.
Ísólfur Líndal Þórisson, Lækjamóti
Ísólfur Líndal hefur verið sigursæll í hestamennskunni og unnið til fjölda verðlauna. Auk þess að bera titilinn Íþróttamaður USVH var hann valinn gæðingaknapi ársins 2013 á uppskeruhátíð hestamanna sem fram fór á Broadway snemma í nóvember. Þá réðst Ísólfur í mikla uppbyggingu á Lækjarmóti sem skiptir miklu fyrir samfélagið í Húnaþingi.
Jóna Halldóra Tryggvadóttir Hvammstanga
Jóna Halldóra var nefnd af fleirum en einum fyrir hjálpsemi. Hún er alltaf boðin og búin til að hjálpa öðrum og á skilið mikil lof fyrir. Á það skilið að vera kosin maður ársins.
Lárus Ægir Guðmundsson á Skagaströnd
Lárus Ægir hefur staðið fyrir ýmsum menningarviðburðum á Skagaströnd og boðið Húnvetningum að njóta með sér. Þá gaf hann flygil í Hólaneskirkju í haust. Stendur vel undir titlinum Maður ársins.
Hægt er að greiða atkvæði HÉR