Maður ársins á Norðurlandi vestra - Auglýst eftir tilnefningum
Eins og áður auglýsir Feykir eftir tilnefningum um mann ársins á Norðurlandi vestra. Tilnefningunni skal koma til Feykis á netfangið feykir@feykir.is í síðasta lagi sunnudaginn 16. desember.
Tilgreina skal nafn og gera stutta grein fyrir viðkomandi einstaklingi og rökstyðja valið á einhvern hátt.
