Málstofa um byggð og samfélag í Húnavatnssýslu á 18. öld
Rannsóknasetur Háskóla Íslands á Norðurlandi vestra og sagnfræðideild Háskóla Íslands efna til málstofu um byggð og samfélag í Húnavatnssýslu á 18. öld. Málstofan er hluti af námskeiði í sagnfræði og segja sjö sagnfræðinemar frá rannsóknum sínum um efnið.
Fer hún fram í Rannsóknarsetrinu á Skagaströnd laugardaginn 7. nóvember og hefst kl. 14. Allir eru velkomnir og frítt inn. Kennari námskeiðsins er Hrefna Róbertsdóttir sagnfræðingur. Fundarstjóri er Harpa Ásmundsdóttir sagnfræðinemi. Boðið verður upp á átjándu aldar kökur í kaffihléinu.
Dagskrá:
14:00: Setning
14:10-14:30
Baldur Þór Finnsson: Ríkidæmi Þingeyraklausturs. Óánægður almúgi og innheimta yfirvalda.
14:30-14:50
Þórður Vilberg Guðmundsson: Hungurdauði og hallæri í Húnavatnssýslu 1755 -1756.
14:50-15:10
Brynhildur L. Ragnarsdóttir: Dauðamein Húnvetninga í Tjarnarsókn 1785 til 1815.
Kaffihlé 15:10-15:40
15:40-16:00
Bjarni Þ. Hallfreðsson: Fólk á Vatnsnesi.
Hvernig þróaðist byggð og félagsgerð byggðarinnar á norðanverðu Vatnsnesi á 18.öld?
16:00-16:20
Hafdís Líndal: Byggð og búfé í Vatnsdal.
16:20-16:40
Linda Ösp Grétarsdóttir: Sakamál í Húnavatnssýslu á árunum 1756-1760.
Framkvæmd refsinga.
16:40-17:00
Þórdís Lilja Þórsdóttir: Blóðskömm í Húnavatnssýslu 1720 – 1806.
Dómar og refsingar fyrir blóðskömm.