Málþing samráðshóps um heimilisofbeldi á Norðurlandi vestra

Nýlega hélt samráðshópur um heimilisofbeldi á Norðurlandi vestra málþing um bætta þjónustu og samræmt verklag í heimilisofbeldismálum. Samráðshópurinn hefur verið starfandi frá því í desember á síðasta ári og hafa félagsþjónustur, barnavernd, lögregluembættið og heilbrigðisstarfsfólk svæðisins unnið að bættu verklagi í heimilisofbeldismálum síðan þá. Nú hafa félagsþjónustur sveitarfélaganna á Norðurlandi vestra skrifað undir samstarfssamning við Lögreglustjórann á Norðurlandi vestra um verklagið sem miðar að því að bæta þjónustu við þolendur og gerendur heimilisofbeldis. 

Á vef Félags- og skólaþjónustu Austur-Húnavatnssýslu segir að á málþinginu hafi annars vegar samkomulagið og verklagið verið kynnt og hins vegar sagt frá niðurstöðum tveggja rannsókna um úrræði og þjónustu fyrir þolendur heimilisofbeldis. Einnig var þjónusta Bjarmahlíðar, miðstöðvar fyrir þolendur ofbeldis á Norðurlandi, kynnt á þinginu. 

Málþingið sóttu tæplega 80 manns. Það var haldið í Félagsheimilinu á Blönduósi og buðu Vilko, Félagsheimilið á Blönduósi og Kaupfélag Húnaþings vestra upp á kaffiveitingar. 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir