Málþing um aukna virkni og þátttöku í samfélaginu
Í dag verður haldið málþing í Húsi frítímans á Sauðárkróki þar sem rætt verður um mikilvægi virkni og þátttöku, gagnvart heilsu, vellíðan og samfélaginu í heild sinni. Byrjað verður klukkan 12:00 á súpu en fyrirlestrar hefjast klukkan 12:30.
Þátttakendur munu m.a. skoða í hvort hægt sé að efla virkni þeirra sem ekki eru í námi eða vinnu eða hafa ekki getu eða tækifæri til að sinna hlutverkum sem hafa þýðingu og gildi fyrir þá.
Það eru Hlutverkasetur, Háskólinn á Akureyri, Svf. Skagafjörður, Virk starfsendurhæfingarsjóður og Starfsendurhæfing Norðurlands vestra sem standa að málþinginu.
Allir velkomnir.