Málþing um fjárfestingar í ferðaþjónustu

Landsbankinn og Íslandsstofa boða til opins málþings um fjárfestingar í ferðaþjónustu undir yfirskriftinni, „Ferðaþjónusta og fjárfestingar“, miðvikudaginn 25. janúar næstkomandi. Málþingið er haldið í samstarfi við iðnaðarráðuneytið og verður haldið á Hilton Reykjavík Nordica frá kl. 10 - 15.

Á málþinginu munu innlendir og erlendir sérfræðingar beina sjónum að stöðu ferðaþjónustunnar á Íslandi, nýsköpun og fjárfestingarmöguleikum.

Iðnaðarráðuneytið og Landsbankinn settu á laggirnar „Ísland allt árið – þróunarsjóð“ í nóvember síðastliðinn með það að markmiði að styðja vöruþróunarverkefni sem leitast við að lengja ferðamannatímabilið á Íslandi. Málþing Íslandsstofu og Landsbankans er því liður í því átaki að efla atvinnusköpun og auka arðsemi í ferðaþjónustu á Íslandi.

Steinþór Pálsson, bankastjóri Landsbankans segir: „Það er stefna Landsbankans að vera hreyfiafl í samfélaginu, fjármagna arðbær verkefni, styðja við og skapa vettvang fyrir nýsköpun. Það er von mín að sem flestir í ferðaþjónustunni og þeir sem hafa hug að því að fjárfesta í ferðaþjónustu sjái sér fært að mæta.“

Jón Ásbergsson, framkvæmdastjóri Íslandsstofu segir: ,,  Íslandsstofa hefur stýrt stórum markaðsverkefnum í þágu ferðaþjónustunnar meðal annars, ,,Inspired by Iceland“ og „Ísland allt árið“. Núna er mikilvægt að beina sjónum að því hvernig hægt er að efla fjárfestingu í greininni þ.m.t. í gegnum erlenda fjárfestingu.“

/Fréttatilkynning

Fleiri fréttir