Málþing um nám í plastiðnum

Föstudaginn 27. september nk. munu Fjölbrautaskóli Norðurlands vestra, Nýsköpunarmiðstöð Íslands, Den jydske Haandværkerskole í Danmörku og Salpaus Further Education í Finnlandi standa að málþingi um nám í plastiðnum á Íslandi, en þessir aðilar hafa undanfarin tvö ár staðið að yfirfærsluverkefni um nám í plastiðnum.  Verkefni þetta hefur verið styrkt af Leonardo hluta Menntaáætlunar Evrópusambandsins og gengur undir nafninu Plastic Processing Education eða PPE. 

Á vef FNV segir að megináherslan hafir legið á námi í smíði úr trefjastyrktu plasti, einkum bátasmíði í samvinnu við Siglingastofnun Íslands.  Í vor luku 32 nemendur námi í plastbátasmíði þar sem nemendur, sem hafa a.m.k. 12 mánaða reynslu af smíði úr trefjastyrktu plasti, getað sótt um viðurkenningu frá Siglingastofnun sem plastbátasmiðir.

Málþingið verður sem áður segir haldið föstudaginn 27. september 2013 í Bóknámshúsi Fjölbrautaskóla Norðurlands vestra á Sauðárkrók og hefst kl. 13:00. Gert er ráð fyrir lokum málþingsins um kl. 17:00.

Skráning á málþingið fer fram í síma 455-8000 og með því að senda póst á keli@fnv.is.

Fleiri fréttir