Málþing um stöðu sveitasamfélaga á ársfundi Byggðastofnunar
Ársfundur Byggðastofnunar verður haldinn föstudaginn 1. júní nk. í Miðgarði, Skagafirði. Þar mun Þóroddur Bjarnason, formaður stjórnar Byggðastofnunar setja fundinn, sem er öllum opinn, klukkan 13. Strax á eftir flytur Oddný G. Harðardóttir iðnaðarráðherra ávarp.
Þá mun Þóroddur Bjarnason flytja ræðu og Aðalsteinn Þorsteinsson skýrslu forstjóra Byggðastofnunar. Um klukkan 13:50 fer fram afhending „Landstólpans“ samfélagsviðurkenningar Byggðastofnunar.
Auk hefðbundinna ársfundarstarfa verður haldið málþing um stöðu sveitasamfélaga. Dagskrá þess verður eftirfarandi:
- Kl. 14:00 Steingrímur J. Sigfússon, ávarp landbúnaðarráðherra
- Kl. 14:15 Anna Karlsdóttir, lektor við Háskóla Íslands - hverjir og hvað mun endurnýja og viðhalda íslensku sveitalífi til framtíðar?
- Kl. 14:30 Sigurður Árnason sérfræðingur á Byggðastofnun – þróun byggðar í sveitasamfélögum.
- Kl. 14:45 Eiríkur Blöndal, framkvæmdastjóri Bændasamtaka Íslands – Forsendur fyrir nýliðun í landbúnaði.
- Kl. 15:00 Hafdís Sturlaugsdóttir bóndi í Húsavík á Ströndum – viðhorf bóndans.
- Kl. 15:15 Umræður og fyrirspurnir.
- Fundarstjóri verður Þóroddur Bjarnason formaður stjórnar Byggðastofnunar.
- Kl. 16:00 Fundarlok.