Mannabreytingar hjá Þekkingarsetrinu
Nokkrar mannabreytingar hafi orðið hjá Þekkingarsetrinu á Blönduósi að undanförnu. Í sumar lét Gunnar Tryggvi Halldórsson af störfum og hvarf til annarra starfa. Catherine Chambers fór í fæðingarorlof í lok síðasta mánaðar en kemur aftur til starfa á nýju ári.
Í byrjun september var Ásdís Ýr Arnardóttir ráðin í tímabundið starf í 25% stöðuhlutfalli. Hún mun stýra verkefni Þekkingarsetursins á menntunarsviði, þarfagreiningu á námsframboði á Norðurlandi vestra.
Ásdís hefur lokið BA námi í uppeldis- og menntunarfræði og MA námi í fötlunarfræði. Hún hefur starfað um árabil við Háskóla Íslands við rannsóknir, kennslu og stjórnsýslu.