Mannamót markaðsstofanna 2014

Markaðsstofur landshlutanna setja upp vinnufundinn Mannamót fyrir samstarfsfyrirtæki sín í ferðaþjónustu um allt land í Reykjavík fimmtudaginn 23. janúar kl. 12-16 í flugskýli flugfélagsins Ernis á Reykjavíkurflugvelli.

Mannmót markaðsstofanna sem nú er haldið í fyrsta skipti er kynningarvettvangur ferðaþjónustunnar á landsbyggðinni og tækifæri til að koma á fundum fagaðila í greininni. Tilgangurinn er að kynna landsbyggðarfyrirtæki fyrir ferðaþjónustuaðilum sem staðsettir eru í Reykjavík og vinna með því að dreifingu ferðamanna um landið og uppbyggingu heilsársferðaþjónustu.

Ísland hefur mikið upp á að bjóða og á mikil uppbygging og nýsköpun sér stað um land allt. Mannamót hjálpa til við að mynda tengsl frá höfuðborginni fyrir á landsbyggðina og efla samstarf og samvinnu í ferðaþjónustu. Á Mannamótum bjóða markaðsstofur landshlutana og þátttökufyrirtæki upp á léttar veitingar og smakk úr heimabyggð.

Á Mannamót bjóðum við gestum úr höfuðborginni sem gefst kostur á kynna sér það sem mismundi landshlutar eru að bjóða uppá með áherslu á vetrarferðamennsku:

  • Ferðaskrifstofufólki
  • Starfsfólki upplýsinga- og bókunarmiðstöðva
  • Leiðsögumönnum
  • Nemendum í leiðsöguskólanum og ferðamálafræðum
  • Starfsfólki í þjónustuverum flugfélaga
  • Sölu- og kynningarfólki flugfélaga
  • Ferðaskipuleggjendum
  • Starfsfólki í mótttökum hótela og gistihúsa
  • Opinberum stofnunum:  Íslandsstofa, Ferðamálastofa, Atvinnu- og nýsköpunarráðuneyti, Innanríkisráðuneytið, Samgöngustofu, Isavia, kennurum í ferðamálagreinum ofl.
Fréttatilkynning

 

Fleiri fréttir