Margir bílar á slæmum dekkjum

Veðurstofa Íslands vekur athygli á  slæmri veðurspá fyrir næstkomandi sunnudag og mánudag. Ferðafólki, bændum, sjómönnum og öðrum sem eru háðir veðri í leik og starfi er bent á að gera viðeigandi ráðstafanir vegna þessa.

Núna eiga allir að vera búnir að taka nagladekkin undan en búast má við að snjór og hálka verði víða samkvæmt veðurspá sér í lagi á norður og austurlandi. Við þær aðstæður eiga bílar á sumardekkjum lítið erindi út á viðkomandi vegi.

VÍS skoðaði dekk 50 tjónabíla sem komu á tjónaskoðunarstöð félagsins í mars síðastliðnum.  Dekk 35% þeirra voru með of grunnu mynstri samkvæmt reglugerð, eða innan við 1,6 mm.  Þá voru aðeins 63% bílanna með jafnan loftþrýsting í dekkjunum og 43% með of lítinn loftþrýsting miðað við stærð viðkomandi dekkja.

Dekkin eru eini snertiflötur bílsins við veginn og gæði þeirra skipta því gríðarlega miklu máli. Þau hafa mikið að segja um stöðuleika bílsins og stöðvunarvegalengd og eru því einn af mikilvægum öryggisþáttum bílsins. Upplýsingar um hvaða loftþrýstingur á að vera í dekkjum er að finna í hurðarfalsi bílstjóramegin eða í handbók bílsins. Nánari upplýsingar um dekk og dekkjaskipti bíla er að finna á vis.is.

Veðurspá Veðurstofu Íslands:
- Fyrir sunnudag: Gengur í norðaustan og norðan 15-23 m/s. Rigning eða slydda og síðar snjókoma um landið N- og A-vert, en styttir upp á S- og SV-landi. Kólnandi veður, vægt frost síðdegis en frostlaust S-lands.
- Fyrir mánudag: Norðanátt, víða 10-18 m/s og snjókoma eða él, en þurrt S-lands. Frost um mest allt land, en hiti 0 til 5 stig að deginum syðra.

/Fréttatilkynning

Fleiri fréttir