Margir lögðu leið sína í Bjarnabúð á 112-deginum
Björgunarsveitin Strönd, Skagastrandardeild RKÍ og Slökkvilið Skagastrandar voru með opið hús í Bjarnabúð sl. laugardag í tilefni af 112 deginum. Áætlað er að á milli 90 - 100 manns hafi lagt leið sína í Bjarnabúð á þeim rúmu tveim tímum sem opið var.
Dagskráin hófst kl. 14 með hópakstri viðbragðsaðila um bæinn sem endaði svo niður í húsnæði sveitarinnar en þar var hægt að skoða búnað og tæki slökkviliðsins, sjúkrabíl RKÍ, ásamt tækjabúnaði og bílum björgunarsveitarinnar, segir á heimasíðu björgunarsveitarinnar.
Sjúkraflutningsmenn sýndu skyndihjálp og gat fólk fengið að spreyta sig á hjartahnoði á þar til gerðum dúkkum. Einnig var boðið upp á að prufa að fara í klifurbelti og láta svo hífa sig upp og síga svo aftur niður. Jafnframt var minnt á mikilvægi neyðarnúmersins 112 og fyrir hvað það stendur, ásamt því hvaða aðilar standa að því .