Margir nýliðar í umferðinni

Í upphafi hvers skólaárs bætast margir nýliðar við í umferðinni. Nú hefja til að mynda liðlega 4.500 börn grunnskólagöngu sína og verður umferð við skólana eflaust mikil þegar foreldrar keyra börn sín til og frá. Ökumenn þurfa að virða hraðatakmarkanir, sýna varkárni og stoppa fyrir gangandi umferð, segir í tilkynningu frá VÍS.

Best er að barnið gangi í skólann ef þess er kostur, en þá er mikilvægt að fara öruggustu leiðina. Hana þarf að kynna fyrir barninu og hafa í huga að stysta leiðin er ekki alltaf sú besta. Brýna þarf fyrir barninu að stoppa áður en farið er yfir götu, líta vel til beggja hliða, hlusta og nota gangbraut ef unnt er. Fræða þarf barnið um að ekki sé víst að ökumaður sjái það þó svo að það sjái bílinn og að ekki sé gott að temja sér að ganga yfir bílastæði skólans.

Ef barni er ekið í skólann þá á það að vera í sérstökum öryggisbúnaði umfram bílbelti eins og bílsessu, með eða án baks, þar til það hefur náð 36 kg þyngd. Barnið má ekki sitja fyrir framan loftpúða fyrr en það hefur náð 150 sm hæð og jafnan er það best varið í aftursætinu þar til það er orðið 12 ára. Þegar barnið fer úr bílnum er alltaf öruggast að fara út gangstéttar megin, en ekki út í umferðina.

Gott er að kynna sér hvort skólinn sé með reglur um hjólreiðar barna til og frá skóla. Ef barnið hjólar tryggðu það sé með hjálm og fari vel með hann í skólanum.

Ef barnið notar skólarútu skal fara yfir helstu öryggisatriði á því sviði. Standa ekki of nærri rútunni þegar hún kemur, fara í röð, ekki troðast og spenna alltaf beltin.

Endurskinsmerkjum má ekki gleyma en með þeim sést viðkomandi fimm sinnum fyrr en ella. Best er að velja utanyfirfatnað, skó og töskur með endurskini. Ef ekki er mikilvægt að útvega endurskinsmerki og setja á viðeigandi staði.

/VÍS

Fleiri fréttir