Margrét Petra sigrar söngkeppni FNV

Söngkeppni FNV fór fram föstudaginn 18. febrúar á sal Bóknámshússins. Sigurvegari að þessu sinni var Margrét Petra Ragnarsdóttir sem flutti lagið King of Anything eftir Söru Bareilles. Í öðru sæti var Ása Svanihldur Ægisdóttir með lagið Nine Crimes eftir Damien Rice og í þriðja sæti var Sara Rut Fannarsdóttir með lagið Frá liðnu vori eftir Bergþóru Árnadóttur.

Þá fékk Bergþór Pálmason verðlaun fyrir frumlegasta flutninginn. Tólf keppendur tóku þátt og fluttu fimm keppendur frumsamin lög. Keppnin fór fram fyrir fullu húsi og var í alla staði vel heppnuð.

Flytjendur stóðu sig allir með prýði og átti dómnefndin erfitt með að gera upp á milli þeirra. Lýsing og öll umgjörð keppninnar var til fyrirmyndar og stjórn Nemendafélags skólans til mikils sóma. Þá voru innslög með kynningum á keppendum lífleg og áhugaverð. Hljómsveitin Húsbandið, sem skipuð er þeim Hafsteini Loga Sigurðssyni, Jóni Þór Þorvaldssyni, Reyni Snæ Magnússyni, Snævari Erni Jónssyni og Brynjari Árna Stefánssyni, lék undir söng flytjenda af mikilli leikni og öryggi. Segja má að þar sé valinn maður í hverju rúmi.

Fullyrða má að unglingahljómsveitin Rocket to the Moon, sem lék nokkur lög í hléi, hafi slegið rækilega í gegn fyrir frábæran flutning og sviðsframkomu. Meðlimir hljómsveitarinnar, sem enn eru á grunnskólaaldri, eiga eflaust eftir að láta að sér kveða á þessum vettvangi í framtíðinni. Hljómsveitina skipa þeir Helgi Fannar Gestsson, Benedikt Loftur Rúnarsson og Sæþór Már Hinriksson. Þá skemmti sigurvegari Söngvakeppni framhaldsskólanna frá í fyrra, Kristmundur Axel með aðstoð Söru Rutar Fannarsdóttur, áhorfendum við mikinn fögnuð.

Aðrir keppendur komu fram í þessari röð: Bragi Björn Kristinsson flutti lagið Me and the Devil eftir Robert Johnson, Jónatan Björnsson flutti lagið Svört sól eftir Sóldögg, Hafrún Ýr Halldórsdóttir flutti lagið Með þér eftir Bubba Morthens, Bergþór Pálmason flutti lagiðEinnar nætur gaman eftir hann sjálfan, Guðlaugur Ómar flutti lagið Hjartað brennur eftir hann sjálfan, Ólöf Rún Melstað Ólafsdóttir flutti lagið Þeir eftir hana sjálfa, Brynjar Árni Stefánsson flutti lag eftir hann sjálfan, Sveinn Rúnar Gunnarsson flutti lagið Ég fann þigeftir Jón Sigurðsson og Hjördís Helga Árnadóttir og Jóhanna Lilja Pálmadóttir fluttu lagið Ósýnileg eftir þær sjálfar.

Fleiri fréttir