Marín Guðrún nýr forstöðumaður Hljóðbókasafns Íslands
Húnvetningurinn Marín Guðrún Hrafnsdóttir mun taka við embætti forstöðumanns Hljóðbókasafns Íslands en hlutverk safnsins er að sjá þeim sem ekki geta fært sér venjulegt prentað letur í nyt fyrir bókasafnsþjónustu með miðlun á fjölbreyttu safnefni, þar á meðal námsgögnum, í sem bestu samræmi við óskir og þarfir notenda.
Á vef Stjórnarráðsins kemur fram að Hljóðbókasafn Íslands vinnur í samstarfi við aðila sem standa að skipulagningu bókasafnamála, þá sem vinna að framleiðslu og dreifingu námsefnis og þá sem starfa að málefnum blindra og sjónskertra og annarra hópa sem njóta þjónustu safnsins.
Marín Guðrún Hrafnsdóttir, sem er frá Skeggsstöðum í Svartárdal, lauk B.A. prófi í íslensku frá Háskóla Íslands (1993), M.A. prófi í enskum bókmenntum frá Háskólanum í Leeds (1995), diplómanámi í hagnýtri fjölmiðlun frá HÍ (1996) og M.A. gráðu í hagnýtri menningarmiðlun frá Háskóla Íslands (2017). Hún hefur starfað sem blaðamaður, menningar- og ferðamálafulltrúi Hafnarfjarðarbæjar, verkefnastjóri hjá Lögmannafélagi Íslands og sem sjálfstætt starfandi fræðimaður. Þá er Marín varaformaður Fræðagarðs.