„Markmiðið að búa fyrirtækjum góða vist eða draga þau til okkar“

Félagið Ámundakinn ehf. var stofnað á Blönduósi árið 2003, og var fyrsta verkefni þess að ná þangað ullarþvottastöð Ístex sem fram að því hafði verið í Hveragerði. Helstu markmið félagsins nú eru að stuðla að jákvæðri byggðaþróun og byggðafestu, einkum með því að laða fyrirtæki á svæðið og bjóða þeim fyrirtækjum sem þar starfa góða vist og starfsaðstöðu.
Jóhannes Torfason á Torfalæk í Austur-Húnavatnssýslu er einn af mörgum eigendum Ámundakinnar og hefur verið framkvæmdastjóri félagsins frá upphafi. Blaðamaður Feykis heimsótti Jóhannes á skrifstofu Ámundarkinnar á dögunum og kynnti sér sögu og starfsemi félagsins. Viðtalið birtist í 44. tölublaði Feykis sem kemur út í dag.
„Ég kalla þetta félag stundum fyrirtækjahótel þar sem gestirnir búa mismunandi lengi, sumir búa stutt og aðrir lengur og sumir enda með því að kaupa það rými sem þeir hafa helgað sér. En við erum í rauninni alltaf að þreifa fyrir okkur eftir einhverju sem að gæti orðið til að efla og bæta okkar samfélag,“ segir Jóhannes meðal annars.