Markviss-félagar næla sér í verðlaun
Guðmann Jónsson og Snjólaug María Jónsdóttir, félagar í skotfélaginu Markviss á Blönduósi, náðu góðum árangri á landsmóti í skeet sem haldið var á í Höfnum á Reykjanesi um síðustu helgi. Líkt og á fyrsta landsmóti ársins þá var veðrið í aðalhlutverki mótsdagana og gustaði hressilega um keppendur auk þess sem úrhellis rigning var seinni keppnisdaginn.
Snjólaug hafnaði í 2. sæti í kvennaflokk eftir keppni við SR-inginn Dagnýju Hinriksdóttur. Guðmann náði 3. sæti í 1.flokk og var fjórði inn í undanúrslit þar sem hann ásamt Jakobi Þór Leifssyni (SIH) náði hæsta skori og skutu þeir því til úrslita um sigur á mótinu, en Jakob hafði betur eftir bráðabana.
Á annan í hvítasunnu lá svo leiðin á skotsvæði Skotreynar á Álfsnesi þar sem Guðmann keppti á Sportvíkurmótinu í sporting, en þar hafnaði hann í 2 sæti í B-úrslitum. Næsta mót verður dagana 1.-2. júní í Reykjavík (SR) og eru þrír keppendur skráðir frá Markviss.
Markviss verður svo gestgjafi næsta móts þar á eftir, en landsmót verður haldið á svæði félagsins dagana 22- 23 júní næstkomandi. Þá gefst kostur á að fylgjast með bestu skotmönnum og konum landsins etja kappi í Ólympíugreininni "Skeet."