Markvissfélagar á Norðurlandsmótinu í Skeet
Norðurlandsmótið í Skeet fór fram á Húsavík sl. helgi og voru félagar frá Skotfélaginu Markviss á Blönduósi á meðal keppenda en samkvæmt facebook-síðu Markviss stóðu þeir sig með ágætum á mótinu.
Samkvæmt facebook-síðunni skaut Brynjar Þór Guðmundsson sig upp í 1. flokk á mótinu með 106/125 og hafnaði í 3. sæti auk þess sem hann vann sinn flokk með yfirburðum.
Þá náði Guðmann Jónasson sér ekki á strik að þessu sinni og var nokkuð frá sínu besta en hann skaut 98/125 og hafnaði í 4. sæti á mótinu og í öðru sæti í 1. flokk eftir tap í æsispennandi bráðabana gegn Sigurði Áka Sigurðssyni Skotf. Akureyrar.
Þá tók Snjólaug M. Jónsdóttir þátt í sínu fyrsta móti og stóð sig með ágætum en þetta er í fyrsta sinn sem Markviss er með keppanda í kvennaflokki.
Sigurvegari mótsins var Sigurður Unnar Hauksson Skotf. Húsavíkur og annar varð Guðlaugur Bragi Magnússon Skotf. Akureyrar.
„Norðurlandsmótið verður haldið á Blönduósi að ári og stefnum við að sjálfsögðu á sigur bæði í karla og kvennaflokkum þá,“ segir á facebook-síðu Markviss. Myndir frá mótinu má skoða á síðunni.
Um næstu helgi líkur keppnistímabilinu í skeet með SR-Open og Bikarmóti og munu keppnismenn Markviss verða þar á meðal keppenda.