Markvissfélagar standa sig vel á SÍH-OPEN
Guðmann Jónasson og Brynjar Þór Guðmundsson í Skotfélaginu Markviss á Blönduósi hrepptu þriðja sætinu í A- og B- flokki er þeir kepptu fyrir hönd félagsins á hinu árlega alþjóðlega skotmóti SÍH-OPEN, sem haldið af Skotíþróttafélagi Hafnarfjarðar í áttunda sinn dagana 30. júní og 1. júlí sl.
Fyrirkomulag SIH OPEN er með þeim hætti að eftir fyrri dag er keppendum skipt í A og B flokk eftir skori í fyrstu þremur umferðum mótsins, seinni daginn eru svo tvær síðustu umferðir mótsins, ásamt úrslitum þar sem keppa sex efstu menn í A og B flokkum.
Samkvæmt fréttatilkynningu frá Markviss voru 26 þátttakendur skráðir til keppni að þessu sinni, þar af sjö frá Færeyjum en leirdúfuskotfimi á þar miklum vinsældum að fagna um þessar mundir.
„Eftir fyrri daginn hafnaði Brynjar í B flokk á skorinu 58/75, Guðmann lauk fyrri degi á 63/75 og komst í A flokk. Seinni daginn gekk báðum nokkuð vel og komust báðir í úrslit þar sem Brynjar náði þriðja sæti í B flokki eftir sigur í bráðabana gegn Óskari Þórðarsyni (SIH). Guðmann var sjötti inn í úrslit í A flokki en náði að vinna sig upp í það þriðja með því að skjóta 24/25 í úrslitunum,“ segir í fréttatilkynningu.
Sigurvegari mótsins að þessu sinni varð Pétur Gunnarsson (SIH) og Sigurþór Jóhannesson í öðru sæti.
Nánari upplýsingar um úrslit má finna á http://sti.is/mot&urslit.htm