Matar- og listarhátíðin KUL sett á morgun
Matar- og listahátíðin Könnun umhverfisáhrifa á listsköpun, eða KUL eins og hún er einnig kölluð, verður formlega sett á morgun, föstudaginn 21. september kl. 19. KUL er þverfaglegt verkefni í listsköpun, í umsjón Nes listamiðstöðvar á Skagaströnd, og tengir saman íslenska og erlenda listamenn.
„KUL verkefnið fjallar um listsköpun og áhrif umhverfisins á hana. Markmið verkefnisins miðar að því að skapa afurð sem hægt er að vinna að á staðnum, afurð sem er hagnýt, afurð sem getur verið þverfagleg og sem örvar huga og hönd,“ segir í fréttatilkynningu en áherslan er bæði á mat og listir.
Einn þáttur í KUL er matreiðsluverkefni sem Henry Fletcher, sérfræðingur í nýtingu vannýttra hráefna, stjórnar. Hann mun safna plöntum og sjávarfangi við strendur Skagastrandar og nágrennis og vinnur síðan með matreiðslumönnum á svæðinu að nýta hráefnin við að skapa nýjar mataruppskriftir og endurbæta gamlar. Þeir matreiðslumenn sem taka þátt í verkefninu eru Gunnar Sveinn Halldórsson í Kántrýbæ á Skagaströnd, Björn Þór Kristjánsson og Shijo Mathew í Pottinum Restaurant á Blönduósi og Jón Daníel Jónsson á Sauðárkróki.
Lokahátíð KUL verður á Skagaströnd 29. september, með listkynningum og matarviðburðum listamannanna og matreiðslumanna á svæðinu, sem og heimamanna.
Melody Woodnutt framkvæmdarstjóri Nes listamiðstöðvar.
Framkvæmdarstjóri í Feykisviðtali
KUL er hugmynd sem Tanja Geis, Henry Fletcher, Jacob Kasper og Andrea Cheatham Kasper áttu frumkvæði að. Verkefnið er í umsjón Melody Woodnut, framkvæmdastjóra Nes listamiðstöðvar en hún er einmitt í ítarlegu viðtali í nýjasta tölublaði Feykis, þar sem hún segir m.a. nánar frá listahátíðinni og lífi og starfi á Skagaströnd.
Nes listamiðstöð er staðsett á Skagaströnd og í ár dvelja þar yfir 100 listamenn frá fjölmörgum þjóðlöndum. Vaxtarsamningur Norðurlands vestra styrkir KUL verkefnið.
Nánari upplýsingar er að finna á vefsíðunni: http://cargocollective.com/seas/ og bloggi: http://visibleseas.blogspot.com/.