Matargleði 2 í prentun
Farin er í prentun matreiðslubókin Matargleði 2 sem gefin er út af starfsfólki Leikskólans Barnabæjar á Blönduósi. Bókin er tilvalin gjöf í jólapakkann og kostar aðeins 2.500 krónur. Þess má geta að Matargleði 1 kom út árið 2008 og seldist upp á stuttum tíma.
Þeir sem vilja tryggja sér eintak sem fyrst er hægt að senda pöntun á netfangið kristinlar80@hotmail.com eða í síma 691-8686. Einnig verður hún til sölu hjá starfsfólki Leikskólans og verður það auglýst síðar.