Matarsýning á Akureyri í október

Sýningin verður haldin í Menningarhúsinu Hofi í október. Mynd: Menningarhús.is
Sýningin verður haldin í Menningarhúsinu Hofi í október. Mynd: Menningarhús.is

Sýningin Local Food Festival verður haldin í Menningarhúsinu Hofi á Akureyri í október en þar munu framleiðendur og matreiðslumenn sýna allt það besta sem tengist norðlenskum mat.

Á síðunni Upplifðu Norðurland (northiceland.is) segir að stór hluti þeirrar fæðu sem Íslendingar neyta sé framleiddur á Norðurlandi og þaðan komi hráefni í alls kyns rétti sem bæði heimamenn og erlendir gestir sæki mikið í. „Local Food Festival er því kjörinn kynningarvettvangur fyrirtækja og einstaklinga til að vekja athygli á framleiðslu, matarmenningu, veitingastarfsemi, matartengdri ferðaþjónustu og verslun. Mikil áhersla er lögð á að sýningin sé skemmtileg og eru ýmsir viðburðir skipulagðir, til dæmis matreiðslukeppnir þar sem bæði fagfólk og almenningur fær að spreyta sig með hráefni úr héraði,“ segir þar ennfremur.

Sýningin verður þó fyrst og fremst kynningar- og sölusýning og verður aðgangur að henni ókeypis fyrir gesti. Áhugasamir sýnendur eru hvattir til að tilkynna um þátttöku sem fyrst á netfangið david@vidburdarstofa.is eða í síma 896-3233. Nánari upplýsingar má finna á www.localfood.is

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir