Matjurtagarða á allar fjölbýlishúsalóðir

Á heimasvæði tímaritsins Sumarhús og garðurinn segir frá því að fjölbýlishúsalóðir á Íslandi séu tilvalinn staður til að rækta grænmeti og aðrar nytjajurtir.

Þar segir; „ Þar er víða yfirdrifið pláss sem tilvalið er að nota fyrir áhugasama íbúa, sem vilja fá tækifæri til að rækta á litlum skika við heimili sitt, fá að nýta plássið. Þær Auður I. Ottesen garðyrkjufræðingur og Margrét Backman landslagsarkitekt bjóða húsfélögum fjölbýlishúsa og öllum þeim sem þess óska, aðstoð við að skipuleggja.“

Fleiri fréttir