Með fingurna í fjölbreyttu tónlistarstarfi

Þann 17. júní hlaut Stefán Reynir Gíslason heiðursmerki hinnar íslensku fálkaorðu á Bessastöðum. Var það fyrir framlag hans til tónlistarlífs á landsbyggðinni en hann hefur verið máttarstólpi í skagfirsku tónlistarlífi um árabil og hefur m.a. stjórnað Karlakórnum Heimi við góðan orðstý og er starfandi aðstoðarskólastjóri Tónlistarskóla Skagafjarðar. Stefán stiklaði yfir tónlistarferilinn með blaðamanni Feykis fyrr í vikunni.  

Í viðtalinu er farið yfir víðan völl og berst talið m.a. að tónlistarlífi Skagfirðinga og spyr blaðamaður Stefán hvað hann hafi að segja um það.

„Það verður aldrei betra en þeir sem standa fyrir því, það er bara þannig -  og þar þurfum við að líta í eigin barm. Þeir sem standa fyrir tónlistarlífinu þurfa að horfa á sín verk. Ég er nægilega kappsamur til að horfa ekki á hina fyrst. Fólk er tilbúið að vera með en það þarf að vinna vel og halda utan um það. Ég er alveg viss um að það eru ekki mörg svæði sem eru jafn virk, en þetta er vinna,“ segir hann.

Ítarlegt viðtal við Stefán má lesa í Feyki vikunnar.

Fleiri fréttir