Með lífið að láni

Í þættinum Að norðan á sjónvarpsstöðinni N4 var í síðustu viku rætt við Ólaf Sigfús Benediktsson, 35 ára íþróttakennara á Blönduósi. Í fyrrahaust hneig Ólafur niður í Norræna skólahlaupinu, vegna hjartasjúkdóms sem hann áður hafði ekki vitað um. Vinnufélagi hans, Elín Ósk Gísladóttir sjúkraliði og stuðningsfulltrúi, veitti honum fyrstu hjálp, en hún var einmitt kosin Norðvestlendingur ársins 2013 af lesendum Feykis.

http://youtu.be/no15xYEXuw0

Í viðtalinu lýsir Ólafur þessum örlagaríka degi, sem hann þó man lítið eftir, og bataferlinu í kjölfarið. Einnig er rætt við Elínu um aðkomu hennar og bæði lýsa þau hvernig lífið breytist eftir svona atburði.

Fleiri fréttir